19. september 2005

Hvar ertu Kata?

við sem stundum blogg höfum saknað Kötu, sem ekkert hefur sést á ritvellinum frá því í byrjun ágúst sl. Reyndar áttum við ágæta kvöldstund hjá sameigilegum vini, Reyðfirðingi nokkrum sem bar fram reið/reyð hina bestu úr Mjóavatni á Auðkúlu norðan, ásamt ómældu magni af chardonnay eins og hans er von og vísa. Síðan hefur ekkert til Kötu spurst.

Um Ameríku ekki ég rata
á götuhornum höndunum pata
en fæstir þar vilja
frónbúann skilja
er spyrjum við, hvar ertu nú Kata?

Væntum fregna af þér og fjölskyldu í Rochester eða Reykjavík.

Engin ummæli: