29. ágúst 2008

Í Ólympíuþorpinu


Þessa mynd tók Þorbjörg af fjölskyldunni í heimsókn okkar í Ólympíuþorpið.

28. ágúst 2008

Sushi - ekki fyrir byrjendur

Ég hef lengi verið sushi aðdáandi og kynnt þessa einföldu matargerð og jafnvel orðið til að kenna hana. Hér er svo almennileg tækifærissushi-terta. Uppskriftina má finna hér.

24. ágúst 2008

Kominn frá Kína

Mynd: mbl.is/Brynjar Gauti

Kominn heim eftir velheppnaða ferð frá Kína. Strákurinn minn bætti sinn besta tíma í 100 m flugsundi og er meðal þeirra 50 bestu. Tók engar myndir sjálfur en sjá má nokkrar á heimasíðu Þorbjargar: http://www.123.is/fingurbjorg/pictures/

8. ágúst 2008

Fuglinn minn


Fuglinn minn hann Már - Hjörtur, syndir á ólympíuleikunum í 100 m flugsundi fimmtudaginn 14. ágúst kl. 11.40 í beinni útsendingu á RÚV - sjónvarp.

Við verðum á staðnum.