28. febrúar 2008

Úlfarsfell



Gengum á Úlfarsfell eftir vinnu í gær. Fórum á Stóra Hnúk og Hábungu. Hæst í 295 m h.y.s. Þrekið fer batnandi.

Guðný Rún

Nýfædd frænka - stóran frændgarð.

27. febrúar 2008

Buenos Dias

Hola!
Þá er það byrjað.
Mætti í fyrsta tímann í gær.

26. febrúar 2008

25. febrúar 2008

Verðmæti


Þursar og smalar

Fór á tónleika með Þursaflokknum. Við, ég og mín fyrrverandi buðum sonum okkar með til að upplifa þá stemmingu og músík sem var vinsæl þegar við vorum á þeirra aldri. Aðeins sá yngri átti heimangengt og hafði gaman af að fara með gamla settinu. Sérstaklega fyndið þótti lagið "hver vill elska 49 ára gamlan mann". Þetta var hin besta skemmtun fyrir okkur þrjú, sem áttum góða kvöldstund saman.



Fyrr um daginn hafði ég farið í fyrstu gönguna í Esju prógraminu með skógfræðingnum og þilskipaskrásetjaranum. En þeir hafa sett sér það markmið að koma okkur í almennilegt gönguform. Reyndar var haft var á orði að útgangur okkar minnti frekar á smala sem orðið hefðu eftir í síðustu göngum en fjallagarpa, ef við vorum bornir saman við aðra sem þar voru á ferð í sömu erindum. Við þurfum að skoða nýjustu græjurnar í þessum bransa.

Á sunnudag fórum við Hólmgeir í útreiðatúr upp að Ellliðavatni í góðu veðri og frábæru færi. Léku knapar og hestar á alls oddi. Hólmgeir á Hófi og ég á Flygli.
Um kvöldið eldaði ég svo lundir og file fyrir drengina og viðhengi.

22. febrúar 2008

Too much love will kill you

Queen og Pavarotti

19. febrúar 2008

ljóð dagsins - 8. febrúar sl.

Það fór fram hjá mér að ég átti ljóð dagsins þann 8. febrúar. Læt það fylgja með:

Ég gekk með Kafka
um kræklótt stræti
þar sem aldéflið
andlit sitt sýndi.
Allt var kyrrt
og enginn á kreiki.
Nú er vor og liðinn vetur,
varmenninn flúið Prag.

En veistu hvað býður
við brúna að handan.

14. febrúar 2008

13. febrúar 2008

Vetur


Snjóflyksur bráðna
í augunum grábláu
og breytast í tár
á kinnum þínum rauðum
og kæla ímynd þína.

11. febrúar 2008

Ad meam stellam - puellam

Þig hef ég ungur augum leitt,
ástar minnar stjarna.
Þú hefur hug minn hrifið, seitt
hjarta mitt og frið mér veitt
og stráð með blómum brautu mína farna.

Þú hefur lýst mér liðna stund,
ljósið vona minna.
Hvort grátinn eða glaðri lund
gekk ég, þráði ég þinn fund
til þess einnig ylinn þinn að finna.

Hættu ekki, ljúfa ljós,
að lýsa á vegi mínum.
Líf mitt þér að launum kjós.
Lýstu seinast, himinrós,
inn í dauðann veslings vini þínum.



Jóhann Gunnar Sigurðsson
1882-1906

9. febrúar 2008

Elliðaárdalur

Vaknaði snemma á laugardagsmorgni og hitti fleiri áhugasama göngugarpa. Vegna veðurs var ferð á Esjuna frestað; en á Skálafelli mældist vindur 85m/sek eða hífandi rok. Í staðinn var haldið í Elliðaárdalinn og gengnir 12 km í hressilegu veðri í óborganlegum félagskap.

8. febrúar 2008

Gangan langa og stranga


Hélt áfram með gönguáætlunina. Einhver útivistarþörf sem þarf að svala auk þess að fara á hestbak 2 - 3 í viku. Nú gekk ég í kringum Rauðavatn.

7. febrúar 2008

Tíminn í áföngum lokkandi líður
læðist um vonanna stræti og torg.
Framandi ósnortin framtíðin bíður
færandi hamingju, gleði og sorg.
Lífið er brothætt, lánið er gjöf
leiktu þér aldrei á tæpustu nöf.


Höf: Hákon Aðalsteinsson
1935-

Úr bókinni Imbra.
Hörpuútgáfan, 2002.