31. janúar 2008

Til Hófs

Fákar sýna viljan vakra
verður gjarnan til ein staka
Kveð í bili en kem til baka
til kosta mun þá Hóf minn taka

29. janúar 2008

Til einnrar fótkaldrar

Kuldi er ei konum hollur
kúri þær í húminu
Fer um karla kaldur hrollur
ef krókna tær í rúminu

28. janúar 2008

Fákar

Brúnirnar þyngjast. Þeir harðna á hvarm.
Það hrökkva af augunum neista él.
Riðullinn þyrpist með arm við arm.
Það urgar í jöxlum við bitul og mél.
Þeir stytta sporin. Þeir stappa hófum
og strjúka tauma úr lófum og glófum.
Höfuðin lyftast. Hin lifandi vél
logar af fjöri undir söðulsins þófum.


(höf: Einar Benediktsson)

26. janúar 2008

Gönguáætlun

Fór á fyrstu gönguæfinguna á laugardaginn 26. janúar. Mætti með skógfræðingnum strax í dagrenningu og kynnti honum áætlun mína fyrir næstu mánuði. Byrjuðum með tveggja tíma göngu í hnédjúpum snjó í Heiðmörk. Það var nóg.

25. janúar 2008

Flygill

Flygill minn hefur átt við krankleika að stríða í haust. Kom í hús með holdhnjóska á baki þannig að hann hefur verið á sjúkrabeði í mánuð og stjanað við hann. Fór ekki að taka framförum fyrr en ég klæddi hann í kjól á nóttunni. Fékk loks að fara á bak þann 23. janúar sl.

Fór í túr á Flygli mínum,
flugum yfir á draumaströnd
Færi sögu í fáum línum
á ferð mér héldu engin bönd.
Hátt við svifum um himingeiminn
hurfum bak við sjónarrönd.
Minnist glaður dagsins dreyminn
dulin birtust fáksins lönd.

24. janúar 2008

Árlegur viðburður

Hélt upp á árlegan viðburð. Fékk góðar gjafir m.a. göngustafi frá konu sem hefur skjaldmeyjarhjarta í brjósti. Í því fellst hvatning.

Réttur dagsins

Mexico tortillu salat.

Saxaður rauðlaukur settur í botn á fati að miðlungs stærð
Síðan ein askja af rjómaosti yfir laukinn
Og síðan salsasósu þar yfir eina stóra krukku eða 2 litlar (hot eða medium eftir smekk)
Brytja síðan tómata,papriku og tildæmis agúrkur þar yfir, má vera eftir smekk hvers og eins.
Þetta er látið standa i kæliskáp yfir nótt og síðan sett í skálar og borið fram með tortillaflögum, einnig er gott að hafa snittubrauð með.
Smart er að skreyta salatið með því að stinga tortillaflögum ofan í það.

23. janúar 2008

Hver er maðurinn?

Hvað er um að vera

Mynd af sonunum og "tengdadóttur" sem ég fann á netinu!

18. janúar 2008

A: "Why does it seem as if most of the decisions in my workplace are made by drunken lemurs?"

B: "Decisions are made by people who have time, not people who have talent."

A: "Why are talented people so busy?"

B: "They are fixing problems made by people who have time."

Sendi þetta á mjög svo þögulann vin minn um þessar mundir

Dauður ekki alveg enn,
er hér von á bögu?
Skrifar annál skemmtir senn
skráir Halur sögu!

16. janúar 2008

Nýr skógarvörður á Suðurlandi

Minn helsti ráðgjafi í skógrækt hækkaður í tign.
Tel ég að mestu hafi ráðið fjölbreytt ráðgjafastörf frá því að hann var aðstoðarmaður minn við að planta ýmsum tegundum trjáa í Ljósheimum.

Í 11. veldi

Búinn að skilja 5. veldið - á hraðri leið í það 11.
Enda í samsíða heimi. Hver mun þá elda ofan í þá á þriðjudögum og sunnudögum. Nema ég eldi allar máltíðir framtíðarinnar á einu bretti og sendi um ormagryfjur (holur) á milli heimshluta (ekki í merkingu hins þríviða heims; -heldur annars heims).

(færsla tileinkuð sonum mínum)

15. janúar 2008

Quantum café

Er að reyna að ganga í gegnum vegg.
Ætla að reyna það í n-ta sinn í dag.
Lendi alltaf á honum,
þrátt fyrir vísindalegar kenningar
um að það sé ekki útilokað,
að einn daginn komist ég í gegn.


(er að læra strengjafræði - og var að kynna mér quantum theorem; allt vegna áskoranna frá sonum mínum; mæli með þáttum um strengjafræði).

14. janúar 2008

Táin á karli föður mínum

Þetta söng karl faðir minn víst oft þegar hann var búinn að fá í aðra tána.

Sólsetursljóð.

Nú vagga sér bárur í vestanblæ
að viði er sólin gengin
Og kvöldroðinn leikur um lönd og sæ
og logar á tindunum þöktum snæ
og gyllir hin iðgrænu engin.
En englar smáir með bros á brá
í blásölum himins vaka,
og gullskýjum á þeir gígjur slá,
og glaðkvikan bárusöng ströndinni hjá
í einu þeir undir taka.

(Guðmundur Guðmundsson, skólaskáld)

10. janúar 2008

Á vinnustað mínum voru starfsmenn áminntir um að vanda vinnubrögð við þyngdar og hæðarmælingar.

Margur vill við góminn sinn gæla
guðdómleg finnst þeim sú sæla
en syrtir í álinn
ef röng verða málin
rétt bmi brýnt er að mæla

(bmi=þyngdarstuðull)