23. maí 2006

Ljóðheimar

Ljóð þitt myndast við
þögn í sindrandi huga.
Það hverfur um skeið
en birtist síðan á ný
í ókunnugum heimi.

5 ummæli:

ærir sagði...

tilraun með tönku.

Nafnlaus sagði...

flott, hin tankan á síðunni þinni er með 4 atkvæði í fyrstu ljóðlínu (og er þá væntanlega ekki rétt?)

ærir sagði...

.

ærir sagði...

dyslexian á eftir að verða (er) mér fjötur um fót, svo get ég ekki talið heldur.

er mér viðbjargandi.

hef nú leiðrétt mistökin.

kærar þakkir, þakkir þúsund þakkir.


ps: hef enga skýringu á þessum punkti hér hér í kommenti að ofan.

ærir sagði...

ærir er farinn á lesblindunámskeið -/-