14. mars 2005

Skyldleikans skondnu fræði

Um skyldleikans skondnu fræði,
skapaðist óvissa.
Þegar ég varð móðir mín,
margir urðu hissa.

(Í tilefni fréttar á forsíðu Morgunblaðsins 14.03.2005. Þar kom fram að 40 ára maður lék móður sína í 2 ár til að blekkja tryggingafé út úr stjórnvöldum. Beðist er velvirðingar á ónákvæmni í fyrri lýsingu).

1 ummæli:

huxy sagði...

ég veit um systur sem eru smám saman að breytast í móður sín ;) hvað segja erfðavísindin um slíkt?