22. október 2007

Hvað heitir fjallið í innstu hugarfylgsnum


Þessi mynd er 15x15cm og máluð á striga mér færðum sl. vetur.
Hef verið að prófa nýja penslatækni.






Á sunnudegi var gott að vakna, þó strengir eftir átök við hesta gærdagsins segðu til sín. En að vakna og vita að maður sé ekki einn, með tilhlökkun fyrir hádegisverði. Dreif mig um hádegisbil í góðum félagsskap austur fyrir fjall að Eyrarbakka í hádegisverð, brunch. Yndislegur humar í forrétt, sjávarréttasúpa í aðalrétt og svo cremé brulée í eftirétt. Gerist vart betra enda félagsskapur við hæfi.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þessi er flott, hún má alveg lenda hjá mér kv sys

Guðný Pálína sagði...

Ja, það er greinilegt að sköpunarkrafturinn er fyrir hendi, flott hjá þér.