Nú vagga sér bárur í vestanblæ að viði er sólin gengin Og kvöldroðinn leikur um lönd og sæ og logar á tindunum þöktum snæ og gyllir hin iðgrænu engin. En englar smáir með bros á brá í blásölum himins vaka, og gullskýjum á þeir gígjur slá, og glaðkvikan bárusöng ströndinni hjá í einu þeir undir taka.
1 ummæli:
Sólsetursljóð
Nú vagga sér bárur í vestanblæ
að viði er sólin gengin
Og kvöldroðinn leikur um lönd og sæ
og logar á tindunum þöktum snæ
og gyllir hin iðgrænu engin.
En englar smáir með bros á brá
í blásölum himins vaka,
og gullskýjum á þeir gígjur slá,
og glaðkvikan bárusöng ströndinni hjá
í einu þeir undir taka.
(Guðmundur Guðmundsson, skólaskáld)
Skrifa ummæli