30. janúar 2007

Til systur minnar

Kjúklingasalat

Kjúklingabringur skornar í bita, steikt í olíu, hvítlaukssalti eða öðru góðu kryddi. Þegar þær eru orðnar steiktar (mjúkar og safaríkar) þá hella “Hunts Barbeque orginal” sósu yfir og látið malla í stutta stund, alls ekki hafa of mikla sósu. Gott að taka þær upp og láta mestu sósuna fara af. Ágætt að setja í salatið þegar þær eru volgar.

Salatið
Salat, t.d. iceberg, klettasalat, og eitthvað fallegt salat.
Feta ostur
Kirsuberjatómatar
Gúrka
Avacado (mátulega þroskað)
Rauðlaukur
Furuhnetur (létt ristaðar á pönnu)
Tortillas flögur (plain ekki chili eða osta) muldar létt
Jarðarber
Og bara allt sem þér þykir gott


Sósa
1 dl. Olía (nota olíuna af feta ostinum)
1/2 dl. Balsamic edik
1/2 dl. Sætt franskt sinnep
1 dl. Hlyn síróp Mabel
Marður hvítlaukur ca. 2-3 lauf

Bara smakka til

Blanda öllu salatinu saman rétt áður en borið er fram og hellið sósunni létt yfir. Salatinu er raðað fallega á stórt fat, kjúklingur í miðjunni og salatið hringinn í kring. Ágætt er að hafa sósuna líka sér í skál fyrir þá sem vilja meiri sósu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

takk bróðir takk verð að prófa fljótlega, best væri náttúrlega að vera boðin í mat, ja eða lána þér eldhúsið mitt. kv sys