16. mars 2006

Homo Abdominalis

Fór í leikfimi í gær og hóf formlega átak_2006. Nú er nokkuð komið í leikfimistöðina sem heitir "hraðbraut". Væntingar Æris til þessa fyrirbæris eru miklar. Þar eru umferðaljós, rauð og gul og græn. Kannski gengur breyting til betra lífs eitthvað hraðar og betur í hraðbrautarátakinu.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig líður í dag? k

ærir sagði...

ótrúlega góð líðan, sennilega ekk tekið nóg á. annars þeirri náttúru gæddur að fá ekki strengi fyrr en á öðrum degi frá æfingum.
í dag verður glímt við ótemjur.

Nafnlaus sagði...

Þú gætir farið að ganga með skógfræðingnum, hann týndi sínum óþarfa einhversstaðar í Reykjavík. k