24. janúar 2009

Í tilefni dagsins


Maðurinn sem sagðist vita allt

Kæru vinir, nú er að því komið!
Kallaði maðurinn sem sagðist vita allt.
Og við hin horfðum á hann
skilningssljóum augum.

Hvað áttu við? Spurði hugrakkasti drengur allra drengja.
Að hverju er komið?
Endi alls, svaraði maðurinn sem sagðist vita allt.

Og við settumst öll saman niður og biðum eftir dauðanum.

Björt1988-


Þetta er ljóð dagsins í dag á ljod.is

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Lestu nú þetta:
http://help.blogger.com/bin/answer.py?answer=42662

Settu þetta svo í gang svo ég geti nú fylgst með þessum mögnuðu skrifum!

ke

Nafnlaus sagði...

búinn að gera það

Nafnlaus sagði...

takk