29. maí 2007

Hvítasunna

Ekkert hret.

Á föstudag fyrir hvítasunnu, - lumbra og snúningar.

Laugardagur - plöntun og bruni. Byrjaði daginn á fleiri snúningum, keypti rafstöðvar og staura. Hleypti heimdraganum eftir að hafa fengið úttekt á baðherberginu sem ég ætla að fara að gera upp. Fékk heimsókn guðsonar míns í hesthúsið og kom honum á hestbak og föður hans líka. Hólmgeir tók einn snúning á Skuld á planinu og var svo rokinn í vinnuna.

Komst síðdegis austur í Ljósheima og hafði meðferðis birkiplöntur. Fjörtíu bakkaplöntur frá Sigurbirni í Gróanda í Grásteini og ríflega 20 úr garðinum hjá mér í ásnum. Hvorttveggja kvæmið Embla. Vandaði nú heldur til verka og er að læra að planta rótarhnyðjum. Í miðjum klíðum sá ég útundan mér loga stíga til himins, en kviknað hafði í húshjalli á næsta bæ, - Sólheimum. Brann hann til kaldra kola á örskammri stund. Kom heim með matareitrun af pylsu einni úr sjoppunni á Minni-Borg seint um kvöldið. Tók það fljótt af. Kúfuppgefinn eða er það kúuppgefinn?

Hvítasunnudagur rann upp bjartur og fagur. Við feðgar fórum í árlega grillreið hesthúsins í Víðidal. Tveggja tíma túr í Heiðmörk og við Elliðavatn. Hólmgeir er orðinn hinn besti knapi á góðhryssunni Skuld, en minn hestur lék við hvern sinn hóf. Kvörtuðu margir samferðamenn undan því að við feðgar færum hratt yfir og riðum hart. Í hesthúsinu var síðan kveiktur eldur og lamb grillað og hestar vegsamaðir. Hitti þar unga stúlku sem heitir Sólveig og oft verið nefnd litla Sól. Henni leist vel á mig og sagði að ég mætti kalla sig Hörpu.

Annar í hvítasunnu. Fór í hesthúsið í Kópavogi og heilsaði upp á hestana þar. Drakk kaffi með húsráðanda og hætti við að fara með þá í haga. Fór síðdegis í gróðurleiðangur með Hólmgeiri sem nú þurfti að læra trjárækt með meiru. Eftir útikaffi hjá frænku okkar í Akraseli fengum lánaða kerru hjá tengdaföður systurdóttur minnar. Því áður höfðum við stungið upp glótopp einn mikinn í garðinum heima í ásnum og ekki komið í jeppann. Dýr væru góð ráð ef ekki kæmi til aðstoð fjarskyldra venslamanna ættingja minna. Fórum við því sníkjandi um bæinn og fengum kaffi á einum stað og þar voru lögð inn góð orð fyrir okkur. Fengum við hina ágætustu kerru sem rúmaði talsvert meira en einn glótopp. Var því annar rifinn upp með rótum og bætt við fjórum stórum birkitrjám allt úr sama garði. Og svona til að verða ekki verkefnislausir gripum við með okkur 40 bakkaplöntur. Í þetta sinn sitkagreni smávaxið. Kvæmi enn óþekkt því ég hafði ekki rænu á að spyrjast fyrir um uppruna eða ætt.

Þessu öllu plöntuðum við feðgar svo í Ljósheimum og sannaðist hið fornkveðna að margar hendur vinna létt verk. Sonur minn er betri en enginn í þessu sem öðru og við plöntunina hafði hann það hlutverk að sneiða svörðinn ofan af moldinni. Var sem hundrað hendur væru á lofti þegar hann sveiflaði þar til gerðu verkfæri eins og um golfkylfu væri að ræða. Gekk vel undan okkur en aðallega honum. Í hægri lendina var ég svo bitinn af þurs og gekk ekki heill til skógar það sem eftirlifði dags, -en reyndi þó að hafa við drengnum, skakkur en ekki skældur.

Til að nýta ferðina til fullnustu og ekki vildum við slá slöku við, girtum við svo í kringum þrjá trjáreiti sem við erum búnir að koma upp innan lands(ins). Höfðum við engar sleggju til að reka á eftir staurunum svo við gerðum leik að því að metast um hvor gæti hent staur dýpra niður í jörðina svo úr yrði girðing. Var þetta hin besta skemmtun og lukum við degi með kvöldmáltíð, síðbúinni í Þrastarlundi þar sem á matseðli eru margir réttir og sumir girnilegir en fáir á boðstólum þegar eftir er spurt. Fékkst þar þó þrastarlundarsalsahamborgari með sósu og salati og fátt annað. Var það nokkuð stílbrot við fallegt útsýni og náttúruparadís þar í kring. Af því sem við fengum get ég mælt með kranavatninu sem kom í könnu á borðið og var ekki naumt skammtað í glas.

4 ummæli:

Katrin Frimannsdottir sagði...

Mér þykir þú stórækur í gróðursetningunni, það munar ekki um það þegar farið er af stað.

ærir sagði...

Þetta er bara svo gaman. Á eftir einn leiðangur í sumar og bíð nú spenntur eftir rigningu. Hefi átt að verða bóndi í afdal.

Haraldur sagði...

Halli segir það sama, og að ég held þilskipaútgerðarskrásetjarinn. Þið hefðuð verið góðir saman í Héðinsfirðinum.

Nafnlaus sagði...

'Eg var búin að ýta á takkann áður en ég sá hver var skráður inn...það var sum sé hinn helmingurinn af Halla sem skrifaði. kata