13. október 2006

Uppátækjasamir synir

Ég á tvo syni, (og nei þetta er ekki mynda af þeim báðum heldur bara öðrum). Var að lesa heimasíðu þess eldri þar sem hann lýsir hrekkjum gagnvart þeim yngri. En ég verð að segja, mikil er bræðarkærleikurinn. Því sá yngri hefur aldrei kvartað við föður sinn. Veit ekki hvaðan þeir hafa þetta. Hrekki og umburðarlyndi.

2 ummæli:

Fingurbjörg sagði...

Frá mömmu sinni, hvort tveggja! Eða hlýtur það ekki að vera? Nema það sé frá báðum foreldrum.

Nafnlaus sagði...

Ætli það séu ekki móðurgenin. Umburðarlyndi hennar er vel þekkt og svo eru til ýmsar góðar sögur af hrekkjum hennar frá yngir árum.