
I really thought I’d gone to his house, you know, to heal our spiritual divide. But it turns out I was just gagging for a shag. Those two are so similar.


Í vari hvílir fagurt fley
fánum skrýtt í stafni
Bíð ég enn að byr mér gefi
og báran skipi vaggi.
Leitað hef ég lengi skjóls.
Nú mun sigla um höf í höfn
þó hamist norðan stormur.
Í ölduróti og iðuköstum
áfram beiti seglum.
Þá vind á móti í fangið fæ.
Í dag mun heim í naustið ná
og nóttu dimmri gleyma.
Þetta kvæði átti að lýsa hvað mér þótti dagurinn í dag bjartur og dásamlegur og að ég hefði fyllst nýrri von og þrá. Meira segja svo að ég fór í musteri líkamans og gerði 120 magaæfingar í ístruátakinu 2005. Það var á eftir að hafa annars hugar keyrt upp ranga akgrein og fengið skelfingu lostinn ökumann næstum því beint á stuðarann. Ég var á leið að kaupa grænmeti.
En eins og komið hefur fram áður á öðrum stað: "Andinn lifir ekki á tómu samhengi, hann fylgir leiptranna lögmáli".
Eða eins og sagt var til forna þegar menn höfðu verið höggnir í spað. "Og ekki þurfti hann fleira". Ekki verður frekari speki færð í letur.
Þessi ungi maður fæddist 14. ágúst 2005. Fimm dögum síðar hefði langafi hans heitinn orðið 85 ára. Hann var skírður um helgina og heitir Arngrímur Birnisson og er því næstum alnafni langafa síns. Þessi piltur ber mikinn svip af móður sinni og stóru augun hans afa síns, sem hefur ort fallegt kvæði til stráksins sem ég læt fylgja með þó ekki hafi ég fengið leyfi fyrir því né myndbirtingu. ´
Þegar Krabbi, Sporðdreki og Fiskur eru annars vegar þarf að leggja höfuðáherslu á tilfinningahlýju og hvetja börn í þessum merkjum til að opna sig og fylgjast með að þau dragi sig ekki í skel.Vatnsberinn er aftur á móti hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Það er til að mynda áberandi að Vatnsberabörn sýna ást og væntumþykju á heldur ópersónulegan hátt. Þau eru ekki mjög tilfinningasöm, frekar vingjarnleg og yfirveguð, og þeim er oft illa við mikið kjass og tilfinningar sem þeim finnast væmnar.Vatnsberinn á yfirleitt auðvelt með að læra og spjarar sig því vel í skóla. Honum getur hins vegar leiðst vanabinding og stíf innræting og því kann að vera heppilegt að ræða reglulega við hann um tilgang skólanáms og notagildi hvers fags fyrir sig.Vegna þess að orka Vatnsberans er sterkust á huglægum og vitsmunalegum sviðum er gott að gefa honum þroskandi leikföng og reyna að svala forvitni hans og skapa aðstæður sem víkka sjóndeildarhringinn, svo sem að fara með hann í heimsóknir og gefa honum góðar bækur. Vatnsberinn er félagslynt merki og þarf að dvelja í félagslega lifandi umhverfi.
Enn er í gangi ístruátak 2005 og heldur hefur gengið hægt. Þrýstir nú aftur á mittisólina. Fullur af eldmóði var haldið að Laugum, musteri líkamans eins og stendur þar á vegg. Enda lítið þar fyrir andann þar sem hangið er í ýmsum tækum. En á þessum stað, musteri líkamans, er eftirlit meira og betra en annars staðar enda teknar myndir í karlabúningsklefum og munu ýmsar myndir til sem ekki er vert að greina frá nánar. En sumir munu víst kallaðir fingralangir þó ekki hafi þeir hnuplað neinu.
Á heimasíðu nytjaland.is má sjá þrívíddarmyndir af Tröllaskaga. Að ofan er Eyjafjörður með Hrísey og þar upp af Svarfaðardalru. Þá Ólafsfjarðarmúli. Handan hans er Ólafsfjörður á milli hárra fjalla og skaginn á milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar sem nú á að fara að bora í gegnum. Þar á annesjum eru Hvanndalir og Sýrdalur.
Fór á magnaða fjögurra klst tónleika í gærkveldi. Matteusarpassíuna eftir Johann Sebastian Bach í Hallgrímskirkju. Píslarsaga krists í tónlist og texta, reyndar á þýsku. Þýðingar sem fylgdu með voru ekki síður listasmíði. Á meðal flytjenda voru tveir úr fjölskyldunni. Svili minn sem söng Pontefix (æðsta prestinn) og Pílatus og stóð sig afbragðs vel og svo mágkona mín sem er í Mótettukórnum. Afar minnisstæðir tónleikar. Í kvöld er svo hægt að fara og sjá kvikmyndir Tarkovskis.
Ekki undum við hag okkar í höfuðborginni. Menningarnótt í aðsigi. Fórum austur fyrir fjall og tókum niður tjald í höfuðstaðnum Stærra Skálholti eða Ragnheiðarstöðum sem sumir vilja kalla svo um þessar mundir. Höfum meðferðis tjaldvagnin og tókum stefnu austur að Rangárbökkum-ytri. Þar settum við upp búðir í Mýrarsundi við Kaldbak. Síðar komu vinir okkar
"I need breasts with brains. I don’t mean individual brains, obviously... I mean, not a brain each. You know, I like intelligent women, but you’ve got to draw the line somewhere... I think breast brains would be over-egging the woman pudding."
Varla sést hér vinur lengur,

Berufjörður
Kyngimagnaður kemur í hugann þegar berglöginn eru virt fyrir sér og fossarnir í botni fjarðarins. Stoppuðum við Teigarhorn, skoðuðum sýnishorn bergkristalla en fengum ekki að fara í fjöruna.
Komum svo á Djúpavog. Drifum okkur í sund enda strákurinn okkar að synda 100 m flugsund á HM. Faðirinn ætlar að synda stuðningsund í lauginni á Djúpavogi með Papey ekki svo langt undan. Hætti þó við það þegar sundlaugarvörðurinn bíðst til að sækja sjónvarp og setja út í garð fyrir okkur svo við getum fylgst með og notið sólar íleiðinni. Þar eru ágætir pottar líka. Létum líða úr okkur og fylgdumst spennt með. Sáum krílið okkar synda og standa sig vel. Fengum líka kaffi hjá sundlaugarverðinum. Mæli með sundlauginni á Djúpavogi.
Fengum okkur svo hressingu í Löngubúð áður en lagt var af stað suður.
Ferðin reyndist lengri en við reiknuðum með. Stoppuðum í Lóni og við Hvalsnes þó ekki lengi, enda liðið á dag eftir langa dvöl á Djúpavogi. Héldum svo áfram í Hornafjörð, reyndum að finna landskika vinar okkar, ættuðum frá Hólum í Hornafirði. Þar voru hestamenn og smíðuðu pólokylfur til að leika að breskum heldrimanna skið. Ég er ekki viss um hvernig kyn Óðu-Rauðku hefur plummað sig í því.
En var haldið áfram. Nú stoppað í Skaftafelli, þar vorum við landverðir bæði tvö fyrir 21 ári. Mikið líður tíminn en sumt breytist ekki. Enn eru í gangi ferðir sem við byrjuðum með á þeim tíma. Blómaskoðunarferð að Skaftafellsjökli, söguferð um hlíðarnar og fleira. Ja, þetta gat maður og gerði á sínum ungdómsárum.
Skaftafell var kvatt á ný, enda alltof margir ferðamenn komnir á svæðið. Haldið var inn í nóttina og keyrt á vöktum og drengnum komið á óvart um lágnættið.
Lagarfljót. Snæfell í botni Fljótsdals.
Kvöddum Kóreksstaðagerði í morgun. Aftur skýjað. Kólnandi veður á annesjum norðan lands og austan. Hlýrra til landsins. Dóluðum af stað. Enduðum í Atlavík. Tjölduðuðm þar, heldur var fjólki að fjölga og etv of margt. Fórum svo inn að Skriðuklaustri. Ætluðum í kaffi en enduðum í að fara í leiðsagða ferð um uppgraftrarsvæði klaustursins. Sáum þar grafir og bein og ýmsa hluti sem fornleifarfræðingarnir voru að að sýsla við að grafa upp og koma fyrir. Ekki skemmdi fyrir að bróðir svila míns var leiðsögumaður og fróður mjög um starfið og klaustrið. Dvaldi þar náttúrulega alltof lengi. Fór svo fékk hinn ágætasta kvöldverð í herragarðinum. Lerkisúpu, heimabakað brauð og krækiberjasvaladrykk. Í efirrétt Hrútaberjaskyrköku. Allt úr sveitinni og heimagert. Meira segja mokkakaffið blandað sérstaklega. Aldeilis ágætastur staður.

Hallormstaður
Héldum að Hallormsstað og í kvöldkyrrðinni fengum við okkur göngu um skóginn. Fórum í trjásafnið sem var athyglisvert. Ætla að rækta hengibjörk, blæösp, lindifuru og margt, margt fleiri. 
Lagarfljótsormurinn syndir með landi.
Dyrfjöll
Stóraurð er einhver merkilegast náttúrusmíð Íslands. Björg á stærð við hús og blokkir sem hafa fallið úr Dyrfjöllum sem gnæfa yfir. Lygnt vatn og uppsprettur undan urðinni og björgunum. Sléttur grasbalsi.
Álfheimar. Seiðmagnað andrúmsloft. Sól og blíða. Dvöldum lengi. Komum heim í Kóreksstaðagerði upp úrkvöldmat.

Af Geldingafelli: Dyrfjöll
Vöknuðum í hlýju og björtu veðri í túnfætinum í Kóreksstaðagerði. Sáum loks til fjalla. Yfir gnæfa Dyrfjöll. Drifum okkur af stað í göngu að ráði félaga Ingólfs. Keyrðum upp í Vatnsskarð (leið í Njarðvíkur) og gengum þaðan eftir eggjum, fyrst á Geldingafell (800m) og þaðan er fjallasýn fögur til Dyrfjalla þó ekki sjáist dyrnar þaðan.
Inn til landsins sást Herðubreið
, Snæfell og jöklar austan þess. Til norðurs var sást Langanes og Gunnólfsfjall og beint fyrir neðan lág svo Njarðvíkin. Þaðan var haldið eftir hlíðum Súlna að Stóruurð.
Af Geldingafelli. Fljótsdalshérað og Herðubreið í blámóðu fjarskans.
Vatnajökull og Fljótsdalur af Geldingafelli.
Í botni Loðmundarfjarðar