Sýnir færslur með efnisorðinu mÆrðarmyndir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu mÆrðarmyndir. Sýna allar færslur

19. nóvember 2007

25. október 2007

Stundum er sumar í hjarta þó að hausti.



Farinn að mála blómamyndir. Það er saga til næsta bæjar. Hvað næst?






Hvað snertir þá taug, er snýr við hjarta
snæfugl um sumar, syngdu þinn óð.
Hvar leynist blossinn með leiftrinu bjarta,
er ljómar að nóttu sem kvöldsólarglóð.
Hvenær ná hjörtun að hrærast í takti
sem hamast í einsemd að halda við mætti.
Ég yrki mín kvæði, í alheimisins tómi,
engin þau heyrir, þær nætur ég vakti.
En blómið það fölnar ef brestur sá ljómi,
er bærði við hjarta með titrandi slætti.

18. október 2007

Hvaða lit má bjóða þér?

Þá er komið að því að fara að mála þessa mynd. En stóra spurningin er í hvaða litatónum. Einhverjar hugmyndir?

Býst við að þessi heiti "konan sem sneri baki við mér" eða "kona með uppsett hár á leið í bað".

16. október 2007

Frostrósir


Hrímkaldur hugur
heilsar í vetrarbyrjun
á hvítum fáki.


Mynd gerð við ljóð.

3. október 2007

Work in progress


Um daginn fékk ég senda ullarsokka norðan úr landi og hvar ég spígsporaði í þeim um húsið fékk ég þá flugu í höfuðið að mála mynd.